Snjallar sjálfvirknilausnir sem einfalda þjónustu, sölu og aðgengi
Tæknivit sameinar vélbúnað, hugbúnað og samþættingu við kerfin þín til að setja upp sjálfsafgreiðslu, greiðslur,
QR/RFID/NFC skönnun, aðgangshlið og snjalla vigtun — frá upphafi til enda með skýru rekstrarflæði og mælanlegum árangri.
100% sjálfvirkni, engin handavinna
Stafræn umbreyting
Það er ekki mikið mál að kaupa staka sjálfsala, hlið, myndavél eða vog. En raunverulega virðið verður til þegar ferlin verða sjálfvirk og gögnin flæða sjálfkrafa þangað sem þeirra er þörf og að allt vinnur saman í konsert. Lausnir Tæknivits samþætta hágæða vélbúnað við okkar eigin hugbúnað (VITVOG, VENDRAL og MANDLA appið). Niðurstaðan? Tekjur verða meiri, kostnaður minni og gögn skila sér beint inn í bókhaldskerfið þitt, hvort sem það er Business Central, SAP, DK eða eitthvað annað, án þess að nokkur þurfi að snerta lyklaborð og þú getur fylgst með og brugðist við um leið og hlutirnir gerast.
Lausnir fyrir sveitarfélög
Heildstæðar og hagkvæmar lausnir fyrir sorphirðu, móttöku-, grenndar- og endurvinnslustöðvar, sundlaugar og íþróttamannvirki, söfn og menningarmiðstöðvar.
Sjálfsala og afgreiðsla
VENDRAL er sölu-, aðgangs- og upplýsingakerfi sem sér um allt sem gerist á bak við tjöldin í sjálfsölu og -afgreiðslu. Kerfið tengir saman sjálfsala, snjallsala, afhendingarskápa, sölustanda, aðgangshlið, vefverslanir og snjallsímaöpp.
Umhverfi og úrgangur
Snjallgámar og pressugámar sem fylgjast með fyllingastöðu og tengjast VITVOG fyrir sjálfvirka innheimtu.
Rauntímaskráning á þyngd og efnisflokkum fyrir námur, malbikunarstöðvar og sorpmóttöku, með brúar- og bílvogum.
Sala og aðgangur
Frá sölu til opnunar á aðgangshliði, göngu- eða aksturshliði, TÆKNIVIT sér um allt ferlið með samræmdum vél- og hugbúnaði, þú þarft ekki að leita annað. Hvort sem þú rekur íþróttaleikvang, sundlaug, líkamsrækt, safn, bílastæði, tjaldsvæði eða leigir út sali, þá höfum við lausn fyrir þig sem leysir málið frá upphafi til enda.
Samstarfsaðilar
Við erum í samstarfi við alþjóðlega leiðandi aðila á okkar kjarnasviðum til að geta boðið viðskiptavinum upp á bestu tækni, reynslu og þekkingu, sem völ er á. Þeirra á meðal eru:
Nútímavæddu reksturinn þinn í dag!
Við hjá Tæknivit greinum þarfir þínar, útfærum lausn sem hentar þínum rekstri, setjum upp og ávinningurinn skilar sér hratt og vel. Hafðu samband og sjáðu hvað við getum gert fyrir þig.











