Lausnir
Tæknivit hefur í gegnum tíðina leyst hin ýmsu verkefni er krefjast tæknilegrar útsjónarsemi og þekkingar. Hér fyrir neðan eru dæmi um lausnir:
App lausnir fyrir opnun á hliðum eða hurðum. Tilvalið fyrir húsfélög eða sumarbústaða eigendur.
Aðgangsstýring fyrir viðburði eins og t.d. íþróttaviðburði, tónleika, leikhús, kvikmyndir svo eitthvað sé nefnt. Einnig lausnir fyrir aðgengi að hleðslustöðvum fyrir rafbíla. Tilvalið fyrir húsfélög.
Afgreiðslulausnir fyrir bílastæði, íþróttahús, sundlaugar, salerni, heilsurækt, tjaldstæði, sturtur o.s.frv.
Við höfum mikla reynslu í sjálfvirkum afgreiðslulausnum þar sem viðskiptavinur afgreiðir sig sjálfur.
Fjölhæfar móttöku-, flokkunar- og skráningarlausnir sem geta tengst helstu vogum á markaðnum.