Til baka í skilmála

NAYAX ÞJÓNUSTUSAMNINGUR

Seinast uppfært 21.1.2025

Þetta er gildandi þjónustusamningur TÆKNIVITS fyrir Nayax greiðslubúnað og greiðslukerfi. Samningurinn gildir fyrir alla viðskiptavini TÆKNIVITS með Nayax greiðslubúnað og greiðslukerfi nema í gildi sé sérstakur samningur milli TÆKNIVITS og viðkomandi viðskiptavinar.

Tilgangur

Þjónustusamningur þessi er milli Tæknivits ehf. Kt. 601201-3050 hér eftir nefndur þjónustuaðili og eiganda eða leigjanda Nayax greiðslukerfis á Íslandi, hér eftir nefndur söluaðili. Samningurinn skilgreinir réttindi og skyldur söluaðila og þjónustuaðila við notkun á Nayax greiðslukerfinu. Með þessum samningi fær söluaðilinn aðgang að greiðslukerfi sem gerir honum mögulegt að bjóða sína þjónustu til viðskiptavina á hagkvæman og notendavænan máta. Tækniþjónustu sem innifeldur vöktun á tækjabúnaði og kerfi í viðskiptagreind.

Þjónusta

Færsluþjónusta Nayax

Eftirfarandi samningur veitir söluaðila aðgang að færsluþjónustu Nayax (Nayax Core) í formi móttöku greiðslna af greiðslukortum og netþjónustu í gegnum greiðslukerfi Nayax og virkt fjarskiptakerfi. Þjónustan er beintengd í kerfi viðskiptavinarins í gegnum þjónustukerfi Nayax. Þetta virkjar samskipti við miðlægan grunn Nayax og gefur viðskiptavinum möguleika að versla hratt og örugglega.

Færsluþjónusta Nayax er innifalin í þjónustusamningi þessum.

Færsluþjónusta Nayax tengir söluaðila við færsluhirði sem veitir söluaðila færsluhirðingu. Færsluhirðing er ekki innifalin í þjónustusamningi þessum.

Símaþjónusta

Þjónustuaðili veitir þjónustu vegna stillinga, notkunarleiðbeininga og bilanaleitar vegna tækjabúnaðar Nayax í síma 568 8600 milli kl 09:00 og 17:00 á virkum dögum. Símaþjónusta er innifalin í þjónustusamningi þessum.

Viðhaldsþjónusta

Þjónustuaðili veitir bilana- og viðhaldsþjónustu á verkstæði þjónustuaðila að beiðni söluaðila. Falli bilanir og viðhald undir gilda ábyrgð er þjónustan innifalin í þjónustusamningi þessum. Þjónustuaðili getur einnig sinnt bilana- og viðhaldsþjónustu á vettvangi söluaðila. Vinna á vettvangi söluaðila er gjaldfærð skv. gjaldskrá þjónustuaðila.

Skuldbindingar söluaðila

Söluaðili samþykkir hér með að nota einungis færsluþjónustu Nayax með rafrænum greiðslum á þeim sjálfsala sem tengdur er við afgreiðslubúnað Nayax.

Söluaðili er ábyrgur fyrir að tryggja að greiðsluþjónustan sé ekki misnotuð af starfsmönnum eða hverjum þeim sem hefur aðgang að greiðslulausninni.

Söluaðili er ábyrgur fyrir að uppsetning greiðslulausnarinnar sé í samræmi við kröfur þjónustuaðila.

Óski söluaðili eftir því getur þjónustuaðili sinnt uppsetningu greiðslulausnarinnar skv. samkomulagi.

Greiðslur

Þjónustuaðili innheimtir mánaðarlegt þjónustugjald og önnur gjöld t.d. upphafsgjald vegna uppsetningar posa í samræmi við gjaldskrá þjónustuaðila.

Innheimt er mánaðarlegt Nayax þjónustugjald fyrir hvern þann posa sem tengist Nayax Core einhvern dag þann mánuðinn.

Reikningar eru gefnir út mánaðarlega. Eindagi reikninga er 14 dögum eftir útgáfu reiknings. Aukakostnaður leggst á reikninga sem ekki eru í pappírslausum viðskiptum.

Verðbreytingar

Þjónustuaðili skuldbindur sig til að tilkynna söluaðila verðbreytingar á þjónustu með 30 daga fyrirvara.

Gildistími og uppsögn

Samningur þessi tekur gildi þann dag er söluaðili tekur Nayax greiðslubúnað fyrst í notkun og hann tengist Nayax Core.

Söluaðili getur sagt upp samningi þessum skriflega með 30 daga fyrirvara. Hafi söluaðili gerst brotlegur við ákvæði samnings þessa getur þjónustuaðili sent skriflega kvörtun til söluaðila. Hafi söluaðili ekki lagfært það sem aflaga fór innan þessara 15 daga getur þjónustuaðili þá samstundis sagt upp samningi.

Ábyrgð

Greiðslulausnum Nayax fylgir eins árs ábyrgð frá þeim degi sem þær eru afhentar. Ábyrgðin gildir ekki yfir greiðslulausnir frá Nayax sem hafa bilað vegna:

  1. Aðilar sem ekki eru samþykktir af þjónustuaðila hafa reynt viðgerð á tækinu.
  2. Tækið hefur ekki verið notað í samræmi við leiðbeiningar þjónustuaðila.
  3. Átt hefur verið við tækið á einhvern hátt eða tækið skemmt.

Höfundarréttur hugbúnaðar og kerfis

Nayax Core einingin og öll réttindi tengd Nayax Core einingunni, þar með talið skjöl og leiðbeiningar fyrir Nayax Core eininguna eru í eign Nayax og notuð af þjónustuaðila með leyfi Nayax sem á höfundarréttinn. Innihald þessa efnis er trúnaðarmál og varðað af Ísraelskum og alþjóðlegum höfundarréttarlögum.

Takmörkun ábyrgðar

Söluaðilum má vera ljóst að þjónustuaðili má nota utanaðkomandi þjónustuaðila sem geta haft áhrif á aðgengi þjónustu. Þar á meðal og ekki takmarkað við greiðsluþjónustufyrirtæki og netveitur (GPRS/3G/4G). Farsíma- og netkerfi geta tímabundið verið óvirk sem takmarka og trufla þjónustu tengda greiðslukerfi þjónustuaðila. Að auki er söluaðili meðvitaður um að reglugerðarbreytingar yfirvalda geta skert þjónustu. Að auki má söluaðila vera ljóst að þóknun vegna fjarskiptaþjónustu getur verið hluti af þeim þáttum sem þjónustuaðili getur ekki stýrt. Þetta getur verið rekstur fjarskipta hjá þjónustuveitenda, IP, hliðræn samskipti eða aðrar tegundir samskipta. Þjónustuaðili getur ekki borið ábyrgð á tjóni, skemmdum eða truflunum sem verða vegna aðstæðna sem upp koma hjá þriðja aðila.

Þjónustuaðili ber ekki ábyrgð á göllum, villum og tjóni sem hlýst af því að söluaðili hafi ekki farið eftir leiðbeiningum um rétta samsetningu og/eða notkun vörunnar.

Þjónustuaðili afsalar sér enn fremur allri ábyrgð vegna fjárhagstjóns sem rekja má til vörunnar, svo sem hagnaðartaps, taps á sparnaði, tekjutaps, mannorðsmissis eða nokkurs annars óbeinu tjóni. Þótt svo að þjónustuaðila væri kunnugt um möguleika á að tjón gæti orðið. Ábyrgð þjónustuaðila nær ekki í neinu tilviki til tjóns af völdum efnahagslegs hruns og/eða óbeins tjóns eða tjóns sem var ófyrirsjáanlegt og var ekki á færi þjónustuaðila að taka tillit til við gerð þessa samnings. Krafa söluaðila um bætur eða frádrátt af kaupverði vegna ábyrgðarmála er undir öllum kringumstæðum takmörkuð við nettó kaupverð vörunnar. Verði þjónustuaðili skaðabótaskyldur skal bótafjárhæðin takmarkast við nettó kaupverð vörunnar, enda leyfi lög slíka takmörkun.

Trúnaðarupplýsingar

Allar upplýsingar vegna samnings þessa eru trúnaðarmál og má ekki deila með þriðja aðila. Þagnarskylda gildir ekki um upplýsingar sem samkomulag er um að deila megi með utanaðkomandi. Við uppsögn samnings þessa helst þagnarskylda um efni hans óbreytt.

Framsal réttinda og skyldna

Þjónustuaðili hefur rétt til að framselja réttindi og skyldur sínar vegna þessa samnings. Söluaðili getur einungis framselt réttindi og skyldur sínar vegna þessa samnings með skriflegu samþykki þjónustuaðila. Ekki er hægt að hafna framsali réttinda og skyldna samnings þessa án viðeigandi ástæðna.

Lög og úrlausn ágreiningsmála

Samningur þessi er bundinn íslenskum lögum. Leitast skal við að leysa ágreining sem upp kemur með samningaviðræðum. Náist ekki sátt um ágreining geta málsaðilar leitað til almennra dómstóla hjá Héraðsdómi Reykjavíkur.