Fara í efni

Vinnslusamningur vegna VENDRAL

(e. GDPR Data Processing Agreement - DPA)

Gildistaka: 20. nóvember 2026

1. Hlutverk, skilgreiningar og tilgangur

  • Tilgangur og lagagrundvöllur: Tilgangur vinnslusamnings þessa er að kveða á um réttindi og skyldur aðila við vinnslu persónuverndarupplýsinga í skýjalausninni VENDRAL og tryggja að hún uppfylli kröfur laga nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga (hér eftir nefnd GDPR).
  • Ábyrgðaraðili (Viðskiptavinur): Sá lögaðili sem kaupir eða notar VENDRAL þjónustuna og ákveður tilgang og aðferðir við vinnslu persónuupplýsinga.
  • Vinnsluaðili (Tæknivit ehf., kt. 601201-3050, hér eftir; "TÆKNIVIT", "félagið" eða "við"): Sá aðili sem vinnur persónuupplýsingar í umboði ábyrgðaraðila í gegnum VENDRAL skýjalausnina.

2. Tegundir gagna og eðli vinnslu

  • Tegundir gagna: Aðgangskortanúmer, bílnúmer skráð í LPR-kerfum, kennitölur, tímastimplar notkunar, greiðslufærslur, hreyfimyndir, ljósmyndir og tengdar tæknilegar skráningar.
  • Eðli vinnslu: Hýsing, geymsla, samþætting og miðlun gagna milli vélbúnaðar (s.s. aðgangshliða, sjálfsala, vogakerfa, myndavéla, LPR-myndavéla) og bókhalds- eða viðskiptakerfa ábyrgðaraðila.
  • Hópur skráðra aðila: Viðskiptavinir, starfsmenn, gestir og eða notendur aðstöðu ábyrgðaraðila.

3. Skyldur vinnsluaðila  

TÆKNIVIT skuldbindur sig til að:

  1. Vinna persónuupplýsingar eingöngu í samræmi við skilmála þessa og skriflegar leiðbeiningar ábyrgðaraðila að því gefnu að þær hafi verið sendar félaginu með sannanlegum hætti og að þær uppfylli kröfur GDPR.
  2. Tryggja að starfsmenn sem hafa aðgang að gögnunum séu bundnir trúnaði.
  3. Grípa til viðeigandi tæknilegra og skipulagslegra öryggisráðstafana til að vernda gögn gegn óheimilum aðgangi, glötun eða breytingum.
  4. Aðstoða ábyrgðaraðila, eins og mögulegt er, við að svara fyrirspurnum frá skráðum einstaklingum sem nýta réttindi sín samkvæmt GDPR.

4. Undirvinnsluaðilar og hýsing hjá Hetzner

Ábyrgðaraðili veitir TÆKNIVITI almennt samþykki til að nota undirvinnsluaðila við rekstur VENDRAL.

  • Aðalundirvinnsluaðili (Skýjahýsing): * Heiti: Amazon Web Services EMEA SARL („AWS“).
    • Staðsetning gagnavers: Dublin, Írland (EU-West-1 svæðið).
    • Verndarráðstafanir: AWS uppfyllir GDPR og alþjóðlega öryggisstaðla (ISO 27001, SOC 1/2/3). Gögn fara ekki út fyrir Evrópska efnahagssvæðið (EES).
  • Aðalundirvinnsluaðili (Skýjahýsing): Hetzner Online GmbH (hér eftir nefnt „Hetzner“).
    • Staðsetning gagnavers: Datacenter-Park Falkenstein, Þýskalandi.
    • Verndarráðstafanir: Hetzner uppfyllir GDPR og alþjóðlega öryggisstaðla (ISO/IEC 27001:2022). Gögn fara ekki út fyrir Evrópska efnahagssvæðið (EES).

TÆKNIVIT skal upplýsa ábyrgðaraðila ef breytingar verða á helstu undirvinnsluaðilum.

5.  Öryggisbrot

Komi upp öryggisbrot hjá TÆKNIVITI eða undirvinnsluaðilum er varðar persónuupplýsingar ábyrgðaraðila, skuldbindur félagið sig til að tilkynna ábyrgðaraðila skriflega án óþarfa tafar (eigi síðar en innan 48 klukkustunda frá því að brotið uppgötvast) og veita nauðsynlegar upplýsingar til að ábyrgðaraðilinn geti uppfyllt tilkynningarskyldu sína við Persónuvernd.

6.  Lok samnings og eyðing gagna

Við lok þjónustusamnings um VENDRAL, skal TÆKNIVIT, að vali ábyrgðaraðila, eyða eða skila öllum persónuupplýsingum til ábyrgðaraðila, nema lög krefjist frekari varðveislu þeirra.